Sunnulækjarskóli

Umsjónarkennari við Sunnulækjarskóla

Sunnulækjarskóli

Vegna forfalla er staða umsjónarkennara með 9. bekk við Sunnulækjarskóla á Selfossi laus til umsóknar. Meðal kennslugreina er stærðfræði.

Umsækjandi þarf að hafa kennsluréttindi, góða skipulagshæfileika og mikla hæfni í mannleg-um samskiptum. Reynsla af teymisvinnu og áhugi á þróunarstarfi eru mikilvægir eiginleikar.

Í skólanum er lögð áhersla á sveigjanlega og fjölbreytta kennsluhætti, einstaklingsmiðað nám, teymisvinnu kennara, ábyrgð nemenda og góða samvinnu allra sem að skólastarfinu koma. Laun og starfskjör eru samkvæmt kjarasamningi Launanefndar sveitarfélaga og viðkomandi stéttarfélags. Starfið hentar jafnt konum sem körlum.

Nánari upplýsingar má fá hjá skólastjóra í síma 861 1737 og á vefsíðu skólans:

http://www.sunnulaekjarskoli.is

Umsóknarfrestur er til 3. ágúst 2015.

Umsókn með upplýsingum um menntun, starfsreynslu og umsagnaraðilum sendist Birgi Edwald, skólastjóra, birgir@sunnulaek.is eða Sunnulækjarskóli, Norðurhólum 1, 800 Selfoss.

Skólastjóri


Sett inn: 25. júl.

Umsjónarkennari við Sunnulækjarskóla

Skráð 25. júl.
Staðsetning Suðurland
Starfssvið Kennsla

Nýjustu störfin