Grundafjarðarkirkja

Organisti og kórstjóri

Organisti

og kórstjóri

Laus er staða organista og kórstjóra við Grundarfjarðarkirkju frá og með
1. september

Í Grundarfirði búa rúmlega 800 manns og þar er hefð fyrir miklu og góðu tónlistarlífi.

Um er að ræða 50% starf. Laun eru greidd skv. kjarasamningi FÍH.

Í Grundarfjarðarkirkju er 13 radda pípuorgel smíðað af þýska orgelsmiðnum Reinhart Tzschöckel. Einnig er Atlas-flygill í kirkjunni.

Áhugasamir hafi samband við sóknarprest, sr. Aðalstein Þorvaldsson, í síma 862 8415, sem veitir nánari upplýsingar um starfið. Einnig má hafa samband við formann sókn-arnefndar, Guðrúnu Margréti Hjaltadóttur, í síma 899 5451. Umsóknir skulu sendar á netfangið skallabudir@simnet.is

Umsóknarfrestur er til 15. ágúst nk.

Sóknarnefnd.


Sett inn: 25. júl.

Organisti og kórstjóri

Skráð 25. júl.
Staðsetning Vesturland
Starfssvið Ýmis störf
Starfshlutf. Hlutastarf

Nýjustu störfin