Ennþá sér á parti

Mesta breytingin eftir andlitslyftingu er á framenda bílsins sem er …
Mesta breytingin eftir andlitslyftingu er á framenda bílsins sem er mun ásjálegri með endurformuðum ljósum og stuðara og meira krómi. mbl.is/Tryggvi Þormóðsson

Mitsubishi hefur átt betri daga á bílamarkaði heldur en á síðustu árum. Meðan fyrirtækið var undir verndarvæng stóru Mitsubishi-samstæðunnar og með aðgang að djúpum vösum hennar lék allt í lyndi.

Svo var þessi þáttur aðskilinn og bílaframleiðsluhlutanum gert að standa á eigin fótum. Eins og í öðru uppeldi gekk það brösulega til að byrja með en hefur svo gert merkinu gott og nú koma áhugaverðir bílar aftur frá þessum fyrrverandi risa. Einn þeirra er Outlander PHEV-tvíorkubíllinn sem núna hefur fengið andlitslyftingu til hins betra.

Sneggri upp en áður

Fyrsti Outlander PHEV-bíllinn kom á markað snemma árs 2014 og hefur hann selst mjög vel, ekki síst fyrir þá staðreynd að hann var verðlagður á svipuðum nótum og dísilútgáfa Outlander. Gamli bíllinn þótti frekar óspennandi í útliti en Mitsubishi hefur bætt úr því með þessari andlitslyftingu. Kominn er nýr framendi með díóðuljósum og meira krómi sem og ný afturljós. Nýi bíllinn notar sömu tveggja lítra bensínvélina og áður, sem og sömu rafmótora en CO2 útblástur hefur minnkað úr 44 g/km í 42 g/km og þar af leiðandi hefur eyðslan minnkað enn frekar. Það sem gerir PHEV-bílinn svona sniðugan kost er að þeir 52 km sem að hann kemst á hleðslunni dugar jafnvel mörgum í daglegum akstri til og frá vinnu. Við fengum bílinn til prófunar í talsverðu frosti, allt að 10 stigum og hleðslan dugði ekki lengi í þeim brunagaddi. Sem betur fer er hann fljótur að hlaða smávegis rafmagni inn á rafhlöðuna þegar bensínvélin er í gangi svo að jafnvel í innanbæjarakstri nær hann að taka af stað á rafmagni eingöngu ef hann er ekki botnaður. Þannig nær hann að spara umtalsvert eldsneyti jafnvel þótt rafhlaðan sé næstum tóm. Með því að breyta og uppfæra svo hugbúnað bílsins er hann nú sneggri af stað en hann er heilum tveimur sekúndum fljótari upp í 40 km hraða. Eins og áður er bíllinn rúmgóður og sér í lagi fyrir farþega sína. Gott fótapláss er í aftursætum en öryggisbelti fyrir miðjufarþega er frekar flókið með tveimur festingum svo það er ekki á barna meðfæri. Farangursrými gæti verið betra en taka þarf tillit til þess að rafhlaðan er undir því svo það tekur frá dýptinni, en á móti kemur að lengd þess er vel viðunandi.

Mun hljóðlátari

En hvernig er svo að aka nýju útgáfunni? Mörgum blaðamönnum þótti bensínvélin í grófari kantinum sem og fjöðrun hans og einmitt þess vegna hefur Mitsubishi unnið í þeim þáttum sérstaklega og reynt að bæta úr þeim. Fjöðrunin hefur fengið yfirhalningu þannig að hún skilar ekki eins miklu veghljóði upp í káetuna. Bíllinn er samt sem áður frekar laus á fjöðrun og á það til að missa fljótt grip á afturhjólum þegar fer að reyna á hann á lausara undirlagi. Búið er að vinna í að hljóðeinangra bílinn betur með þykkara gleri og meiri hljóðeinangrun og hefur það tekist vel. Einnig var loftflæðið endurbætt kringum hliðarspegla og settir þéttari dyrakantar. Í fyrri gerð PHEV fannst undirrituðum skipting á milli rafmótora og bensínvélar aðeins hikandi en í þessum bíl er hún algjörlega hnökralaus. Eins veitir hann meira viðbragð í stýri sem gefur ökumanni meiri tilfinningu fyrir akstrinum. Ókostur tvíorkubíla eins og Outlander PHEV er að þeir eru með stiglausa sjálfskiptingu sem er ekki skemmtilegur búnaður þegar reynt er á bensínvélina. Annar ókostur við skiptinguna er hversu næm hún er og þegar reynt er að setja hann í hlutlausan þarf að beita mikilli nákvæmni til að lenda ekki í bakk eða áframgír. Loks er takkinn fyrir stöðustillingu fyrir framan gírstöngina svo að erfitt er að komast að honum en nær hefði verið að hafa hann vinstra megin.

Ódýrari kostur

Outlander PHEV fær talsvert meiri búnað en áður og má í því dæmi benda á bakkmyndavél og upphitað stýri. Verðið hefur því hækkað örlítið eins og búast mátti við en alls ekki of mikið. Einn helsti kosturinn við bílinn er að verðinu er stillt í hóf ólíkt því sem gerist annars staðar, þar sem kúnninn þarf að borga meira fyrir nýrri tækni. Það sést best á því að PHEV er aðeins 200.000 kr. dýrari en dísilúgáfan. Rúsínan í pylsuendanum fyrir íslenska markaðinn er svo að hann er jepplingur en það er langvinsælasti stærðarflokkur bíla á Íslandi í dag. Þegar hann kom fyrst á markað var hann þar að auki einn um hituna en landslagið er fljótt að breytast í bílaheiminum. Í dag eru þrír aðrir hlaðanlegir tvíorkujepplingar í boði hérlendis, Volvo XC90 T8, Porsche Cayenne S E-Hybrid og BMW X5 xDrive40e en þeir eiga allir það sammerkt að vera mun dýrari en Outlanderinn.

njall@mbl.is

Kostir: Hljóðlátur, eyðsla, verð

Gallar: Farangursrými, sjálfskipting

Farangursrými nær nokkuð langt inn í bílinn en gólfið er …
Farangursrými nær nokkuð langt inn í bílinn en gólfið er frekar hátt vegna rafhlöðunnar undir því.
Nýjar og endurformaðar 18 tomma heilspeyptar álfelgur setja mun meiri …
Nýjar og endurformaðar 18 tomma heilspeyptar álfelgur setja mun meiri svip á bílinn.
Aftursæti eru stór og rúmgóð en þrátt fyrir það er …
Aftursæti eru stór og rúmgóð en þrátt fyrir það er fótarými gott eins og sjá má, en ökumannssætið er stillt fyrir þann sem situr fyrir á myndinni. mbl.is/Tryggvi Þórðarson
Þótt bensínvélin sé aðeins 121 hestafl eru tveir rafmótorar 82 …
Þótt bensínvélin sé aðeins 121 hestafl eru tveir rafmótorar 82 hestöfl hvor en það þýðir að bíllinn skilar 200 hestöflum samtals.
P-takkinn fyrir stöðustillingu sjálfskiptingar er á skrýtnum stað fyrir framan …
P-takkinn fyrir stöðustillingu sjálfskiptingar er á skrýtnum stað fyrir framan gírstöngina svo að skáskjóta þarf fingri til að komast að honum.
Mælaborðið er nánast eins og áður og á litaskjá beint …
Mælaborðið er nánast eins og áður og á litaskjá beint fyrir framan ökumann má sjá hvort bíllinn ekur á raforku, bensínorku eða báðum og hvort hann sé að hlaða inn á rafgeyminn. mbl.is/Tryggvi Þormóðsson
PHEV stendur fyrir Pulgin Hybrid Electric Vehicle sem lauslega má …
PHEV stendur fyrir Pulgin Hybrid Electric Vehicle sem lauslega má þýða tengiltvíorku rafmagnsbíl, sem er ekki endilega fjálasta heitið.
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur: