Fágun og fegurð frá Lexus

Lexus RC300h er einkar vel heppnaður bíll í útliti, með …
Lexus RC300h er einkar vel heppnaður bíll í útliti, með greinilegan ættarsvip en um leið eigin einkenni. Coupe-lagið er feikivel úr garði gert og bíllinn hefur talsvert háan áhorfsstuðul. mbl.is/Ófeigur Lýðsson

Enn bætist við Lexus-fjölskylduna og nýjasti meðlimurinn er satt að segja einn af þeim fríðari. Lexus RC er sportbíll af „coupe“ sortinni og bara ferlega flottur að sjá. Hann sver sig í ættina með svipmiklu framgrillinu sem er með sama stundaglaslaginu og aðrir fjölskyldumeðlimir og útlitið allt geislar af sjálfsöryggi.

Hér er ekki farið í neina launkofa með eitt eða neitt; Lexus eru á útopnunni um þessar mundir og er það vel.

Á hvern minnir hann mig?

Þegar blaðamaður fékk bílinn fyrst til reynslu hreyfði útlit bílsins við einhverjum eldfornum minningum – einhvers staðar hafði ég séð eitthvað við þennan bíl, einhvern tímann í fyrndinni. Ekki kom það upp í kollinn sisona svo ég lagði það til hliðar og beið þess að það dúkkaði upp þegar minnst varði, sem það og gerði. En til að byrja með var nóg til þess að dást að því línur Lexus RC eru, sem fyrr sagði, bráðfallegar og coupe-lagið gengur prýðilega upp. Bíllinn er hvorki og snubbóttur né of langur, bara akkúrat passlegur. Nýjustu bílarnir frá Lexus höggva iðulega í sama knérunn og NX-jepplingurinn, með skarpar – nánast flugbeittar – línur en RC-bíllinn er heldur sveigðari og straumlínulagaðri. Fyrir bragðið er útlitið dýnamískt og sportlegt á alla kanta. Rétt eins og gríðarmikið framgrillið gerir framendann flottan og tilkomumikinn, þá er prófíllinn að sama skapi sérlega fallegur og baksvipurinn sömuleiðis. Útlitslega er bíllinn einfaldlega framúrskarandi vel heppnaður og ekki sakar F-Sport upfærslan. Bílar í þessum flokki verða trauðla mikið gæjalegri.

Og þá komum við aftur að því sem mér fannst ég hafa séð áður; svarti kamburinn sem er að finna á hornunum aftan við afturdekkin kallast á við loftinntökin á hvítum Ferrari Testarossa. Gúgglið bara.

Afbragðsgott innanrými

Eins og vera ber með sportbíl þá liggja sætin neðarlega og eru vel afturhallandi, sem þýðir að innstigið er talsvert djúpt. En þegar inn er sest, beltin spennt og vélin ræst er því ekki að neita að það fer fantavel um ökumann. Mælaborð og stjórntækjainnrétting er reyndar svolítið út og suður, þetta er upphleypt á meðan hitt er innfellt og næsta kynslóð á vafalítið eftir að skarta innréttingu sem verður meira í línu við straumlínulagaðan bílinn. Þetta er þó meira fagurfræðilegt umkvörtunarefni því öll „fúnskjón“ er til fyrirmyndar, um leið og efnisval er óaðfinnanlegt í alla staði. Lexus RC er einkar vel búinn í bak og fyrir og sérstaklega er vert að hrósa hljóðkerfinu frá Mark Levinson er sem alger negla. Það fer feikivel um ökumann og farþega, sem sitja í umvefjandi sætum, sjá vel til allra átta og hafa það gott að öllu leyti, en aftursætisfarþegar þurfa að gera sér að góðu afskaplega takmarkað fótarými og skert útsýni því gluggarnir á hliðunum eru í knappara lagi. En plássið sleppur samt til fyrir þau skipti þar sem þarf að koma fjórum einstaklingum milli staða. En fyrst og fremst er þetta „framsætabíll“ og það er til nóg af sedan- og skutbílum fyrir þá sem vilja gera vel við farþegana. Þessi er hugsaður út frá ökumanni og farþega í framsæti og um þá væsir ekki.

Fleiri hestar hefðu ekki sakað

Talandi um ökumanninn – víkjum þá að akstrinum sjálfum. Sumir höfðu á orði um NX-sportjeppann að það sem helst hái þeim annars bráðfallega bíl að hann skorti svolítið afl. Það má að einhverju leyti heimfæra það umkvörtunarefni á RC-bílinn líka. Það hefði hreint ekki sakað að hafa svolítið fleiri hross undir húddinu og eru þau þó 225 talsins. Bíllinn er hins vegar 1.775 kíló og það skýrir sjálfsagt að hann er 6,8 sekúndur í hundraðið og þó það sé út af fyrir sig ekkert dónalegt þá er það eiginlega heldur meira en útlitið gefur fyrirheit um. Aggressíf ásjónan á RC300h nánast lofar hröðun upp í 100 km/klst. á 5 sekúndum. En hann er engu að síður vel kvikur af stað, sem er það sem mest er um vert, og togið er sprækt framan af. Á það má minna í þessu samhengi að hvergi á almennum akstursleiðum á landi hér er löglegt að aka á 100 km/klst. svo þetta er út af fyrir sig ekki svo alvarlegt. Auk þess er stýringin hin fínasta, hann snýr við „á tíkalli“ eins og þar stendur og er sérlega lipur og þýður í akstri. Sport-stillingin gerir hann enn reffilegri og á meðan hann fæst eingöngu sjálfskiptur er hann samt sem áður með blöðkum til beinskiptingar í stýrinu, fyrir þá ökumenn sem vilja sjá um þetta sjálfir.

Hybrid-hliðin er þá hin ákjósanlegasta og bíllinn eyðir ákaflega skaplega í blönduðum akstri. Uppgefin eyðsla er 5 lítrar, undirritaður var í tæpum 6 sem er ekki til að kvarta yfir. Í borgarakstrinum er vel hægt að rúlla á rafmagninu einu saman, alltént á meðan rafhlaðan á eitthvað inni. Það hefði verið enn skemmtilegra að hafa bílinn sem plug-in hybrid, og það má vonast eftir slíku næst.

Plássið er hið fínasta fram í Lexusnum en aðra sögu …
Plássið er hið fínasta fram í Lexusnum en aðra sögu er að segja afturí. mbl.is/Ófeigur Lýðsson
Ökumaður og farþegi sitja lágt í Lexus RC300h og sportbílatilfinningin …
Ökumaður og farþegi sitja lágt í Lexus RC300h og sportbílatilfinningin er ósvikin. Efnisvalið er fínt og búnaður allur afskaplega ríkulegur. mbl.is/Ófeigur Lýðsson
Gríðarmikið framgrillið setur tilkomumikinn svip á RC300h.
Gríðarmikið framgrillið setur tilkomumikinn svip á RC300h. mbl.is/Ófeigur Lýðsson
Það kemur talsvert á óvart hvað skottið í Lexus RC300 …
Það kemur talsvert á óvart hvað skottið í Lexus RC300 er rúmgott. mbl.is/Ófeigur Lýðsson
Lexus RC330h hefur nánast jafn flottan baksvip og hann hefur …
Lexus RC330h hefur nánast jafn flottan baksvip og hann hefur framenda, nokkuð sem fáir státa af. mbl.is/Ófeigur Lýðsson
Lexus RC330h
Lexus RC330h mbl.is/Ófeigur Lýðsson
Lexus RC330h
Lexus RC330h mbl.is/Ófeigur Lýðsson
Lexus RC330h
Lexus RC330h mbl.is/Ófeigur Lýðsson
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur: