Jeep Renegade er kominn á klakann

Það er hátt undir Jeep Renegade og sterklegir plastkantar sjá …
Það er hátt undir Jeep Renegade og sterklegir plastkantar sjá til þess að lakkið fari ekki illa í ófærum. mbl.is/RAX

Það er til marks um aukin umsvif á bílamarkaði eftir alltof mörg mögur ár í kjölfar hrunsins að nýtt bílaumboð haslar sér völl. Fyrirtækið heitir Ís-Band – sem stendur fyrir Íslensk-Bandaríska.

Er það umboðsaðili fyrir Fiat Chrysler hér á landi en fyrirtækið hefur þess utan verið öflugt við innflutning á jeppum frá Jeep og Dodge auk Ram-pallbílanna. Það er því við hæfi að máta eins og einn jeppa frá Jeep til að bjóða Ís-Band velkomna til leiks og úr varð að reynsluaka Jeep Renegade í svokallaðri Trailhawk-útgáfu.

Sérstakur að sjá – en venst

Það er kunnara en frá þurfi að segja að í seinni tíð hefur það færst í aukana að framleiddir séu bílar með „sérstakt“ útlit til að mæta óskum og kröfum þeirra sem vilja skera sig úr. Meðal slíkra ökutækja má nefna bæði Nissan Juke og Citroën Cactus; bílar sem sumir elska og aðrir elska að hata. Hvorum megin sem fólk skipar sér í sveit þá er óumdeilt að eftir slíkum bílum er tekið á götunum og þesslegur bíll er Jeep Renegade. Hann er reffilegur að sjá og snaggaralegur og sigraði undirritaðan ekki við fyrstu sýn. En reynsluakstur yfir röska tvo sólarhringa mýkti mig allnokkuð í afstöðu minni til bílsins því hann reyndist fínasti akstursbíll, þéttur og góður, og að skilnaði má segja að ég hafi „skilið“ hann betur. Þar sem um alvöru jeppa er að ræða, með háu og lágu drifi vel að merkja, þá má hann alveg vera svolítið óbyggðalegur í laginu. Það fer honum bara vel.

Rammgerður og sterkbyggður

Að innan kemur Renegade skemmtilega á óvart. Það er talsvert lagt í hönnunina og þó er ekkert pjatt í gangi heldur rímar útlitið innandyra vel við ytra byrðið. Hér virkar allt traust og rammgert og ökumaður fær gott öryggi á tilfinninguna. Trailhawk-útgáfan sem reynd var skartar skemmtilegum áhersluumgjörðum kringum gírstöng, hátalara og aðra slíka staði og ljær bílnum skemmtilegan svip að innan og brýtur upp annars kolsvarta innréttinguna. Mælaborð og aðstaða ökumanns er vel heppnuð, góður snertiskjár heldur utan um helstu hluti sem þarf að eiga við og hátalararnir, sem eru frá Beats By DrDre, skila fínasta hljóði. Plássið er gott og einkum er hátt til lofts, sem gerir bílinn þægilegan til ferðalaga.

Merkilega sprækur í akstri

Fyrst í stað virkaði Trailhawk eilítið stirðbusalegur en þegar undirritaður vandist bílnum og fann taktinn, ef svo má segja, samdi okkur prýðilega. Þetta er jeppi, svo því sé haldið til haga. Trailhawk er kraftmesta útfærslan af Jeep Renegade og vélin með sínum 170 hestöflum skilar togi sem nemur 350 Nm og bíllinn er skemmtilega kvikur þegar gefið er í. Reyndar gafst ekki færi á að prófa bílinn almennilega utanvega en hann býr að skínandi góðri fjöðrun sem væntanlega er til marks um ágætis eiginleika þegar komið er út fyrir malbikið.

Jeep Renegade Trailhawk er skikkanlega verðlagður fyrir jeppann sem hann er og kostar frá tæpum sex milljónum króna. Fyrir hópinn sem eltist við bíla sem eru auðþekkjanlegir á sérstöku útliti og skera sig úr í umferðinni er hér kominn jeppi sem telst býsna góður kostur.

Sjö raufa grillið er kunnuglegt á Jeep Renegade (sbr. Jeep …
Sjö raufa grillið er kunnuglegt á Jeep Renegade (sbr. Jeep Liberty) en hann ætti engu að síður að vera auðþekkjanlegur mbl.is/RAX
Innréttingin er vel út garði gerð, stýrið gott og snertiskjárinn …
Innréttingin er vel út garði gerð, stýrið gott og snertiskjárinn góður. mbl.is/RAX
Baksvipurinn er af sama meiði og útlitið allt, sterklegt en …
Baksvipurinn er af sama meiði og útlitið allt, sterklegt en sérstakt. mbl.is/RAX
Í athafnarými bílstjóra Jeep Renegade.
Í athafnarými bílstjóra Jeep Renegade. mbl.is/RAX
Jeep Renegade er skemmtilega innréttaður.
Jeep Renegade er skemmtilega innréttaður. mbl.is/RAX
Jeep Renegade er skemmtilega innréttaður.
Jeep Renegade er skemmtilega innréttaður. mbl.is/RAX
Aftursæti Jeep Renegade.
Aftursæti Jeep Renegade. mbl.is/RAX
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur: