Arocs er nýr kraftajötunn frá Mercedes-Benz

Arocs fylgir fast á hæla atvinnubílanna Actros og Antos frá …
Arocs fylgir fast á hæla atvinnubílanna Actros og Antos frá Mercedes-Benz sem komu á markað 2011 og 2012 og hafa fengið góðar viðtökur í Evrópu. mbl.is/Mercedes-Benz

Mercedes-Benz mun með vorinu kynna nýjan vörubíl til sögunnar, Arocs. Verður hann með mikilli veghæð og grindin verður hærri en venja er í vörubílum.

Mercedes-Benz er þekktari fyrir lúxusbíla en þýski bílaframleiðandinn er einnig mjög öflugur þegar kemur að atvinnubílum. Hefur hann um árabil verið með Actros nafnið á öllum stærri vöru- og flutningabílum sínum, þar til nú, að nýr vinnuþjarkur með nýju nafni bætist við.

Arocs verður með meiri sveigjanleika og gefur þar af leiðandi mun meiri möguleika á að nota bílinn í allri vinnu utan vega m.a. við vegagerð, í húsgrunnum, í námum og annars staðar sem þörf er á, segir í tilkynningu frá bílaumboðinu Öskju, umboðsaðila Mercedes-Benz hér á landi.

Arocs verður boðinn í mörgum útfærslum, bæði tveggja, þriggja og fjögurra drifa. Bílarnir verða frá 238 hestöflum upp í alls 625 hestöfl og með burðargetu frá 18 tonnum upp í alls 44 tonn.  Arocs er umhverfismildur vinnubíll þrátt fyrir mikið afl og vinnugetu og hefur m.a. fengið Euro VI umhverfisvottun.

„Arocs er mjög spennandi bíll í hinum sífellt stækkandi vinnubílaflota Mercedes-Benz. Arocs mun hafa getu og burði til að vinna utanvega og á krefjandi stöðum og fæst bæði með eða án framdrifs.  Arocs verður mjög spennandi kostur fyrir íslenskan markað og sérstaklega fyrir verktaka sem er í snjómokstri, vegagerð eða annari verktakavinnu t.d. undir krana.  Arocs verður hagkvæmur bíll í alla staði,“ segir Páll Halldór Halldórsson,“ sölustjóri atvinnubíla hjá Öskju.

mbl.is