Coulthard varar við hraðakstri

Coulthard hefur heldur betur hægt á sér eftir að hann hætti keppni, og ætlast nú ... stækka

Coulthard hefur heldur betur hægt á sér eftir að hann hætti keppni, og ætlast nú til að aðrir geri hið sama. Wikipedia.org/Mark McArdle

Hann er 41 árs, skoskur og hefur unnið 13 keppnir í Formúla 1. Hann er líka með kjálka sem eru breiðari en axlirnar hans, hann heitir David Coulthard.

Coulthard tekur nú þátt í umferðaröryggisátaki í Skotlandi og er líklega fyrsti Formúlu 1 ökumaðurinn til að gera slíkt, að minnsta kosti í auglýsingum sem sýndar eru um allt land. Sem þó er í raun undarlegt, því fáir eru líklega meðvitaðri um allt sem getur farið úrskeiðis í umferðinni.

Í myndbandinu sem hér fylgir, og er fengið af vef Telegraph, talar Coulthard um öryggi á sveitavegum og vitnar í banaslys sem varð vegna hraðaksturs. 

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda