Fjórir bílar fá fimm stjörnur
Árekstraröryggisstofnunin Euro NCAP gaf í vikunni fjórum bílum einkunnir fyrir árekstrarpróf. Það voru bílarnir Renault ZOE, Skoda Octavia, Toyota Auris og Toyota RAV4.
Skemmst er frá því að segja að allir bílarnir fengu fimm stjörnur af fimm mögulegum, þó örlítill munur sé á einkunnagjöfinni.
Þannig var Skoda Octavia með 81,75 af 100 í meðaleinkunn, eða mest af bílunum fjórum.
Þar af voru 93% fyrir öryggi fullorðinna farþega, 86% fyrir öryggi barna sem farþega, 82% fyrir öryggi gangandi vegfarenda en 66% fyrir öryggisbúnað til hjálpar bílstjóra.
Næst var Toyota Auris með 77,5 af 100 í meðaleinkunn.
Það skiptist þannig að fyrir fullorðna farþega fengust 92%, fyrir börn sem farþega fengust 84%, fyrir gangandi vegfarendur 68% og fyrir öryggisbúnað til hjálpar 66%.
Þá kemur Toyota RAV4, sem fékk í meðaleinkunn 75,75 af 100.
Þar af voru 89% fyrir fullorðna, 82% fyrir börn, 66% fyrir vegfarendur og 66% fyrir hjálparbúnað.
Loks var Renault ZOE með 72,5 af 100 í meðaleinkunn.
Hann fékk 89% fyrir fullorðna, 80% fyrir börn, 66% fyrir vegfarendur og 85% fyrir hjálparbúnað.




