Írskir sambandssinnar æfir út í Kia
Suður-kóreski bílaframleiðandinn Kia á ekki upp á pallborðið hjá írskum sambandssinnum vegna nafngiftar á nýjasta sköpunarverki sínu, Provo-bílnum.
Nafn þetta er hið sama og notað var um hryðjuverkasveitir írska lýðveldishersins (IRA) á Norður-Írlandi og því ýfir það upp gömul sár þar í landi.
Tveir þingmenn flokks sambandssinna á breska þinginu, Gregory Campbell og William McCrea, hafa lagt fram þingsályktunartillögu þar sem Kia er hvatt til að finna nýtt nafn á „Provo-módelið“ þar sem núverandi nafn minnir fólk á „ógnarverk og mannvíg“ vígamanna IRA.
Kia hefur svarað því til að það áformi enga sölu á bílnum í Bretlandi og hugmyndabíllinn sem sýndur er á bílasýningunni í Genf um þessar mundir hafi aðeins verið smíðaður sýningarinnar vegna. Talsmaður Kia í Englandi bætti því við, að með hinni óheppilegu tengingu sem nafngiftin hafi haft í för með sér hafi verið með öllu tilviljun og ekkert misjafnt hafi legið að baki henni.




