Bílar
| mbl
| 8.3.2013
| 10:55
Íslenskt Súkkustökk sem endar illa
Ekki hefur staðið á viðbrögðum við myndböndum sem við birtum í gær af Suzuki jeppum sem voru bókstaflega á ferð og flugi. Kristinn sendi okkur tölvupóst með slóð á íslenskt myndband af Súkku sem stekkur, en eins og segir í póstinum: „Þetta gengur ekki alltaf svo vel!“
Það fylgir sögunni að engan sakaði við stökkið, eða lendinguna, og má það teljast mesta mildi.
Átt þú svipuð myndbönd í fórum þínum? Sendu okkur póst á bill@mbl.is
© Árvakur hf.
Öll réttindi áskilin





