Klessubíll Ronaldo fæst seldur á eBay
Klesstur Ferrari sem eitt sinn var í eigu fótboltamannsins Cristiano Ronaldo verður boðinn til kaups á uppboðsvefnum eBay.
Það var Ronaldi sjálfur sem klessti bílinn á sínum tíma í Manchester á Englandi. Núverandi eigandi hans er franskur bensínstöðvar- og bílaverkstæðiseigandi í Strasbourg í austurhluta Frakklands.
Samkomulag hefur tekist milli eBay og eiganda bílsins um að hann verði auglýstur til sölu. Áður hafði uppboðssíðan lokað auglýsingu um sölu og krafðist upprunavottorðs bílsins, sem lögmaður eigandans segir að hafi þrisvar verið lagt fram.
Segir bensínstöðvarstjórinn framferði eBay hafa valdið sér miklu fjárhagstjóni. Á það féllst eBay og samþykkti að greiða honum bætur að ótilgreindri upphæð, en blaðið Dernieres Nouvelles d'Alsace segir þær gætu numið allt að 20.000 evrum, jafnvirði 3,3 milljónir króna.
Bensínstöðin, Star Autos, stefndi eBay fyrir að loka fyrir upphaflegu söluauglýsinguna.
Stöðin keypti rauða Ferrari 599 GTB af portúgölskum brotajárnssala fyrir 33.000 evrur og hafði sett 50.000 sem lágmarksboð í bílinn á eBay. Var hæsta boð komið í 125.000 evrur þegar lokað var fyrir auglýsinguna.
Ekki hefur verið skýrt frá hvenær bíll þessi birtist aftur á eBay.
Ronaldo klessti bílinn á öryggisgirðingu í undirgöngum við flugvöllinn í Manchestir árið 2009, viku áður en hann var sæmdur gullboltanum sem leikmaður ársins 2008.




