Valentino Rossi sendiherra fyrir Opel Adam

Valentino Rossi mun auglýsa Adam. stækka

Valentino Rossi mun auglýsa Adam.

Nífaldur heimsmeistari á mótorhjólum, Valentino Rossi, sem duflað hefur við Ferrari, hefur nú tekið að sér að vera sendiherra fyrir litla borgarbílinn Opel Adam á Ítalíu.

Í þessu skyni verður Rossi í aðalhlutverki - ásamt bílnum - í umfangsmikilli auglýsingaherferð fyrir Opel Adam. Þar verður lögð áhersla á það sem sameiginlegt er með knapanum og bílnum; persónuleiki, sköpunargleði, kraftur og nákvæmni.

Af hálfu Opel segir að óvenjulegt og sérstakt útlit Adam fari saman við karakter ítölsku mótorhjólahetjunnar, án þess þó að því sé lýst betur.

„Valentino Rossi er hinn fullkomni sendiherra fyrir Adam; óþvingaður, hnyttinn og svolítið lotningarlaus - rétt eins og Adam okkar. Um leið er hann sérdeilis strangnákvæmur, varfærinn og bregst við og framkvæmir af hámarks nákvæmni, eða eins og þýska verkfræðiþekkingin sem er grunngildi allra bíla okkar,“ segir Roberto Matteucci, yfirmaður Opel á Ítalíu.

Opel Adam má fá skraddarasniðinn að óskum hvers og eins kaupanda. Má þannig fá 61.000 mögulegar útfærslur á ytra útliti bílsins, aðallega litavali, og næstum 82.000 mismunandi útfærslur á innra frágangi. Hér er því á ferðinni það sem nefnt er í vaxandi mæli „lífsstílsbíll“. hann er þriggja dyra og með aksturseiginleika sem sniðnir eru að borgarakstri, en sagt að þeir njóti sín engu að síður utanbæjar.

Sérfræðingar í bílaframleiðslu spá því að A-geirinn, sem Adam heyri til, muni vaxa jafnt og þétt á næstu árum. Frá árinu 2000 hefur sala á lífsstílsbílum  í þessum stærðarflokki - um 3,70 m á lengd - aukist um 30%. Sömuleiðis hefur sala á lúxusbílum í B-geiranum - um 4,00 metrar á lengd - aukist um rúm 110%. Opel ætlar að láta til sín taka á þessum markaði með Adam.

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda