Faðma Fiat í Kringlunni

Átta ungmenni eru nú stödd í Kringlunni þar sem þau munu eyða helginni í innilegum faðmlögum við glænýja Fiat-bifreið. Tilefnið er leikur sem bílasölurnar Bílalíf og Diesel.is efna til í samstarfi við útvarpsstöðina K100,5, en sá sem endist lengst í faðmlagi við bifreiðina fær ókeypis afnot af henni í heilt ár.

Um er að ræða bifreið af tegundinni Fiat 500 sport 2013 árgerð. Hægt var að skrá sig til leiks á facebooksíðu útvarpsstöðvarinnar, en starfsmenn hennar sáu síðan um að velja þá átta sem fá að taka þátt. 

Keppnin hófst í dag klukkan 10 og stendur til 22 í kvöld. Keppnin heldur svo áfram um helgina og alveg þar til einn stendur eftir uppi sem sigurvegari. 

Enn sem komið er hefur enginn þátttakandi hætt keppni, en spennandi verður að sjá hver tollir lengst. 

mbl.is

Bloggað um fréttina