90% velja rafbíl í stað bensín- eða dísilbíls

Bílar úr síðasta skipi Eimskips fyrir viðskiptavini islandus.is
Bílar úr síðasta skipi Eimskips fyrir viðskiptavini islandus.is

Islandus.is, sem flutt hefur inn bíla frá Bandaríkjunum, segir að stökkbreyting hafi orðið í vali viðskiptavina sinna á minni og meðalstórum fjölskyldubílum. Sé svo komið, að nú velji 90% viðskiptavina fyrirtækisins rafbíl í stað bensín- eða dísilbíls.

Í tilkynningu frá islandus.is segir, að í síðustu ferð Eimskips frá Bandaríkjunum hafi nánast allir bílarnir í skipinu verið rafbílar fyrir viðskiptavini islandus.is.

Islandus.is hefur í áratug selt allar gerðir bíla frá helstu framleiðendum. Vinsælasti rafbíllinn hjá fyrirtækinu er Nissan Leaf sem fæst hjá islandus.is frá krónum  2.995.000.



mbl.is