Bílabúð Benna aðstoðar 150 fjölskyldur um jólin

Ragnhildur G. Guðmundsdóttir frá Mæðrastyrksnefnd, Benedikt Eyjólfsson og Margrét Beta …
Ragnhildur G. Guðmundsdóttir frá Mæðrastyrksnefnd, Benedikt Eyjólfsson og Margrét Beta Gunnardsdóttir frá Bílabúð Benna og Guðlaug Jónína Aðalsteinsdóttir frá Mæðrastyrksnefnd Reykjavíkur.

„Hjálparstarf þessara aðila hefur lengi gengt mikilvægu hlutverki í íslensku samfélagi, en þó er þörfin fyrir aðstoð þeirra sérstaklega brýn um þessar mundir, því miður.“

Þetta sögðu hjónin Margrét Beta Gunnarsdóttir og Benedikt Eyjólfsson, eigendur Bílabúðar Benna við afhendingu jólaaðstoðar til Mæðrastyrksnefndar Reykjavíkur, nú á dögunum.

Í stað þess að senda viðskiptavinum sínum jólagjafir í ár hefur Bílabúð Benna ákveðið frekar að gefa 150 hamborgarhryggi frá Kjarnafæði, til einstaklinga og fjölskyldna,  sem eru í neyð og þurfa á aðstoð að halda yfir hátíðarnar.

„Við erum þakklát fyrir að geta aðstoðað 150 fjölskyldur með þessum hætti í ár fyrir milligöngu Mæðrastyrksnefndar,“ bæta þau Margrét Beta og Benedikt við, en við gjöfinni fyrir hönd Mæðrastyrksnefndar tóku Ragnhildur G. Guðmundsdóttir og Guðlaug Jónína Aðalsteinsdóttir.

mbl.is

Bloggað um fréttina