Leggið ekki þreytt upp í páskaferð

Syfjaðir ökumenn geta verið hættulegir.
Syfjaðir ökumenn geta verið hættulegir. RAX

Í aðdraganda páskanna ættu ökumenn að hafa í huga að mikilvægt að þeir séu úthvíldir áður en sest er undir stýri. Banaslys hafa orðið í umferðinni sem rekja má til þess að ökumaður sofnaði undir stýri.

Þetta kemur fram í fréttatilkynningu frá Sjóvá. Þar segir að í nýlegri könnun á vegum Samgöngustofu komu meðal annars fram að 10% ökumanna segjast oft eða stundum skyndilega hafa orðið mjög þreyttir eða syfjaðir undir stýri. Slíkt hefur áhrif á viðbrögð og árvekni í umferðinni.

Í sömu könnun sögðust 8% ökumanna hafa dottað við akstur. „Bílstjórar gera sér oft ekki grein fyrir því að þeir eru þreyttir og syfjaðir en það hefur áhrif á viðbrögð og árvekni í umferðinni. Ökumaður sem dottar eða sofnar undir stýri ógnar ekki eingöngu sínu eigin öryggi heldur annarra í umferðinni,“ segir í fréttatilkynningunni.

Næstu daga er viðbúið að margir landsmenn leggist í ferðalög á milli landshluta. Sjóvá bendir á að stundum er lagt af stað að loknum vinnudegi, og ökumenn því ekki úthvíldir fyrir lengri akstur. 

Hvað getur þú gert?

Ef ökumenn finna það að þeir eru að sofna við akstur er eina ráðið að hvíla sig eða skipta um bílstjóra.  Í fréttatilkynningunni eru ökumenn hvattir til þess að nota skynsemina og þrjóskast ekki við þegar þeir finna að þreytan tekur yfir.    

  •   Vertu vel úthvíld(ur) áður en lagt er af stað.
  •   Gott er að taka sér hlé frá akstri á tveggja tíma fresti.
  •   Skiptist á að aka bílnum, ef samferðamenn þínir hafa bílpróf.
  •   Stoppaðu bílinn á góðum stað og leggðu þig í 15 mínútur ef þig syfjar við aksturinn.
  •   Minnkaðu hitann í bílnum. Meiri hiti í bílnum hefur svæfandi áhrif.
  •   Fáðu þér frekar vatn heldur en kaffi, það er meiri hætta á syfju þegar líkamann skortir vökva.
  •   Borðaðu léttar máltíðir. Þungur matur og mikill sykur getur leitt til syfju.
mbl.is