Bjallan rauk út

Hin sextuga VW bjalla Bredrups hefur verið rúllandi auglýsing fyrir …
Hin sextuga VW bjalla Bredrups hefur verið rúllandi auglýsing fyrir ölgerð í Tromsö.

Haakon nokkrum Bredrup í  Tromsö í Norður-Noregi óraði ekki fyrir því er hann auglýsti gamla Volkswagenbjöllu á söluvefnum Finn.no að hann yrði búinn að selja hana fimm mínútum seinna.

Reyndar var hér ekki um einhverja venjulega bjöllu að ræða, heldur sextíu ára gamla. Yfir Bredrup rigndi tilboðum í bílinn sem hann keypti á námsárum sínum í München í Þýskalandi árið 1967 og hafði átt allar götur upp frá því.

„Síminn hringdi eftir aðeins fimm mínútur og náunginn, sem býr í Ósló, vildi kaupa gripinn,“ segir Bredrup í blaðinu Nordlys.


mbl.is