Lögreglan kaupir sérútbúna Volvo lögreglubíla

Halldór Ó. Sigurðsson, forstjóri Ríkiskaupa og Egill Jóhannsson, forstjóri Brimborgar …
Halldór Ó. Sigurðsson, forstjóri Ríkiskaupa og Egill Jóhannsson, forstjóri Brimborgar við undirritun samnings Ríkiskaupa og Brimborgar um kaup á sex sérútbúnum Volvo lögreglubílum.

Ríkiskaup, fyrir hönd ríkislögreglustjóra, hefur gert samning við Brimborg um kaup á sex Volvo V70 D4 Drive-E lögreglubílum í kjölfar útboðs.  Allir bílarnir verða sérútbúnir lögreglubílar frá verksmiðju Volvo í Gautaborg í Svíþjóð.

Bílarnir verða í notkun hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu og lögreglunni á Suðurnesjum, að því er fram kemur í tilkynningu frá Brimborg um samninga þessa.

Volvo lögreglubílarnir eru sérútbúnir að því leytinu að undirvagninn og hemlakerfið er sérstaklega styrkt til að þola mikið álag. Slit-skynjarar eru á bremsubúnaði og álfelgurnar eru hannaðar með það að markmiði að auka loftflæðið að bremsunum til að auka kælingu.

Rafkerfi Volvo lögreglubílana er öflugra og raflögnin gerir ráð fyrir ýmsum aukabúnaði sem nauðsynlegur er í lögreglubílum. Af sömu ástæðu er öflugri rafgeymir í bílunum. Sæti Volvo lögreglubílana eru að auki hönnuð til að þola meira álag.

Volvo lögreglubílarnir eru búnir kraftmikilli 181 hestafla dísilvél með 8 þrepa sjálfskiptingu sem skilar 400 Nm í togkraft. Lítil mengun og sparneytni einkennir þá en CO2 losun er aðeins 119 g/km og eyðsla í blönduðum akstri einungis 4,5 lítrar á hundraðið.

Sérhæfðir lögreglubílar í fyrsta sinn

„Þetta er í fyrsta skiptið sem lögreglan á Íslandi fær afhenta sérútbúna lögreglubíla beint frá bílaverksmiðju. Umbreytingarferlið hjá Volvo fyrir lögreglubíla tekur um 45 klukkustundir sem tryggir að þeir þola betur gríðarlegt álag m.a. í forgangsakstri.“ segir Egill Jóhannsson, forstjóri Brimborgar.



mbl.is