Innkalla Hyundai Sonata bifreiðar

Hyundai Sonata árgerð 2002. Sú árgerð er ekki innkölluð.
Hyundai Sonata árgerð 2002. Sú árgerð er ekki innkölluð. Sverrir Vilhelmsson

Neytendastofu hefur borist tilkynning frá BL ehf um innköllun á Hyundai Sonata bifreiðum, sem framleiddar voru 1. mars 2005 til 21. janúar 2010. Ástæða innköllunarinnar er sú að við gæðaeftirlit hefur komið í ljós að í sumum tilfellum hefur orðið mikil ryðmyndun í afturhjólabita sem getur leitt til óeðlilegs styrkleikamissis.

BL mun hafa samband við þá bifreiðareigendur sem þessi innköllun á við um.

mbl.is