15,6% aukning í nýskráningum í ágúst

Sala á nýjum fólksbílum í nýliðnum ágústmánuði jókst um 15,6% en nýskráðir fólksbílar á þessu tímabili eru 496 á móti 429 í sama mánuði í fyrra,  eða aukning um 67 bíla.

Samtals hafa verið skráðir 7616 fólksbílar á fyrstu átta mánuðum ársins og er það 29,2% aukning frá fyrra ári, samkvæmt upplýsingum frá Bílgreinasambandinu.

„Salan nýrra bíla hefur verið góð það sem af er ári sem og sala notaðra bíla.

Aukning hefur verið í nýskráningum fólksbíla til einstaklinga og fyrirtækja allt árið en þegar komið er framm á þennan árstíma er búið að afgreiða stærsta hluta af þeim bílum sem fara til bílaleigna

Bílafloti landsmanna er orðin gamall eða að meðaltali 12 ára. Gamlir bílar eru töluvert óöruggari og eyðslufrekari en nýjir bílar og því er það ánægjulegt að sjá að nýskráningum fjölgar,“ segir Özur Lárusson framkvæmdastjóri Bílgreinasambandsins um sölutölurnar.

mbl.is