Bakka verður með gætni

Borgað getur sig að bakka inn í stæði þegar bíl …
Borgað getur sig að bakka inn í stæði þegar bíl er lagt.

Nokkuð  algengt er að ökumenn sem bakka út úr bílastæði hugi ekki nógu vel að umferð, bæði bíla og gangandi fólks, aftan við bíl sinn.

„Þetta getur orðið mjög hættulegt og eru ökumenn hvattir til að vera sérstaklega vel á verði undir slíkum kringumstæðum,“ segir í heilræðum Samgöngustofu. 

Þar er ennfremur bent á, að það geti oft borgað sig að bakka í stæði, þannig að menn hafi góða yfirsýn yfir fyrirhugaða akstursleið.

mbl.is