Hakkarar hrella Porsche

mbl.is/afp

Tölvuþrjótum tókst að svindla á starfsmönnum Porsche í byrjun vikunnar.

Villtu þeir á sér heimildir og þóttust vera upplýsingatæknar að sinna viðhaldi. Náðu þeir að flytja 800.000 evrur úr sjóðum Porsche og millifæra peningana yfir á erlendan bankareikning, að sögn blaðsins Le Parisien.

Rannsókn á málinu er hafin af hálfu stofnunar sem fæst við sviksamlega fjárplógsstarfsemi.


 

mbl.is