58% aukning í nýskráningum fólksbíla

Sala á nýjum fólksbílum í nýliðnum septembermánuði jókst um 58% en nýskráðir  fólksbílar á þessu tímabili eru 553 eintök á móti 350 í sama mánuði 2013. Er það aukning um 203 bíla.

Samtals hafa verið skráðir 8.169 fólksbílar á fyrstu 9 mánuðum ársins og er það 30,7% aukning frá fyrra ári.

Fjöldi bílaleigubíla af heildar nýskráningu er 4.279 það sem af er árinu eða 52%

Í september voru nýskráðir 26 bílaleigubílar eða 4,7% af heildar nýskráningum mánaðarins

Salan nýrra bíla hefur verið góð það sem af er ári sem og sala notaðra bíla einnig, að sögn bílgreinasambandsins.

„Aukning hefur verið í nýskráningum fólksbíla til einstaklinga og fyrirtækja allt árið en þegar komið er frammá þennan árstíma er búið að afgreiða stærsta hluta af þeim bílum sem fara til bílaleigna.  Þrátt fyrir það er góður gangur í sölu nýrra bíla sem fara í auknum mæli til einstaklinga og fyrirtækja,“ segir  Özur Lárusson framkvæmdastjóri Bílgreinasambandsins.

mbl.is

Bloggað um fréttina