Stóru tíðindin eru Opel

„Ég hef auðvitað verið með bíladellu frá því ég man …
„Ég hef auðvitað verið með bíladellu frá því ég man eftir mér og man því vel eftir því, frá því ég var pjakkur, þegar frændi minn einn og fleiri í kringum mig áttu Opel í þá daga, fyrir um fjörutíu árum. Opel var mikill klassabíll.“ mbl.is/Kristinn Ingvarsson

Það fór ekki framhjá nokkrum bílaáhugamanni hér í borg þegar Bílabúð Benna opnaði nýverið Opel-umboð sitt með pompi og prakt. Sitthvað fleira er þó á döfinni hjá Benna og félögum.

„Við fundum fyrir mikilli jákvæðni þegar við kynntum Opel-umboðið og magnað að sjá hversu margir mættu til að vera viðstaddir. Þessar fyrstu viðtökur og þessi mikli áhugi sem við merkjum gefa okkur nokkra ástæða til að ætla að þetta vandaða þýska merki eigi talsvert inni,“ segir Benedikt Eyjólfsson, eða Benni eins og hann er alla jafna nefndur í bransanum. Þó margt sé um að vera í starfsemi Bílabúðarinnar um þessar mundir eru stórtíðindin ótvírætt endurkoma Opel á íslenskan markað. Og Benni er spenntur yfir því að bjóða merkið á ný.

Þýskt merki í gegn

„Ég hef auðvitað verið með bíladellu frá því ég man eftir mér og man því vel eftir því, frá því ég var pjakkur, þegar frændi minn einn og fleiri í kringum mig áttu Opel í þá daga, fyrir um fjörutíu árum. Opel var mikill klassabíll sem maður hafði álit á og ég hef alltaf fylgst með þessu merki í gegnum tíðina.“ Benni segir athyglina hafa tímabundið beinst meira að Ameríku í kjölfar þess að Bílabúð Benna tók við Chevrolet-umboðinu en í kjölfar þess að Benni hóf að flytja inn Porsche hafi hann tekið að fylgjast á ný grannt með þýskum bílum almennt, að Opel meðtöldum. Við blasti að Opel gekk ekki eins vel og ætla mætti á Íslandi.

„Þegar við hófum svo viðræður við Opel var einkum tvennt sem kom mér á óvart,“ segir Benni. „Í fyrsta lagi fóru bílarnir fram úr væntingum, bæði hvað varðaði gæðin og svo líka hvað bílarnir voru flottir. Í annan stað kom það mér nokkuð í opna skjöldu hvað Opel – sem hefur verið í eigu General Motors um langt skeið – er sem fyrr alveg rosalega þýskt. Þarna upplifði ég menningu sem er ekki ósvipuð og hjá Porsche. Kerfi og ferlar hjá fyrirtækinu eru hundrað prósent og akkúrat. Það eru miklu meiri prógrömm á öllu mögulegu en til dæmis hjá Chevrolet, svo ég nefni annað merki þar sem við höfum samanburðinn. Þetta eru jú Þjóðverjar og þeir vilja hafa hlutina í ákveðnum skorðum. Þannig að það kom mér mjög svo á óvart að sjá og upplifa hvað fyrirtækið er þýskt og verksmiðjurnar í Rüsselsheim flottar. Svo við erum mjög spennt fyrir því að bjóða upp á Opel og í þessari breiðu línu af bílum. Við erum einnig að fara í atvinnubílana sem við höfum aldrei verið í áður og þá má nefna að við hlökkum til að bjóða upp á Opel Insignia sem er ekta þýskur lúxusbíll, en á verði sem kemur á óvart.“

Þörfin fyrir nýja bíla mikil

Að sögn Benna er tímasetningin á opnun hins nýja Opel-umboðs, með sinni breiðu línu bíla, um margt spennandi en ekki síst af því að markaðinn vantar nýja bíla. „Það vantar í reynd fleiri þúsund bíla inn á markaðinn og endurnýjunarþörfin er bókstaflega æpandi. Það sem er mikilvægt að fólk átti sig á í þessu sambandi er að þú getur keypt þér nýjan bíl en samt verið að spara umtalsverða peninga. Gamlir bílar eyða oft mjög miklu samanborið við nýja bíla, viðhald og viðgerðir eru oft afskaplega kostnaðarsamir liðir þegar bílar komast til ára sinna og einnig má ekki gleyma að eldri bílar menga miklu meira. Tæknin og um leið viðmiðin þegar kemur að mengun hafa gerbreyst á síðustu árum og þetta er atriði sem sífellt fleiri taka með í reikninginn því fólk lætur sig þessi mál varða. Síðast en ekki síst eru það svo öryggismálin,“ segir Benni með áhersluþunga. „Gamlir bílar eru einfaldlega miklu lakari hvað öryggið varðar en nýir bílar. Bíll sem fékk fimm stjörnur hjá Euro NCAP fyrir fimm árum fær líklega ekki nema þrjár í dag því kröfurnar eru orðnar svo gríðarlega miklar og nýir bílar um leið svo öruggir því tækninni fleygir sífellt fram ár frá ári.“

Ef marka má sölutölur yfir nýja bíla hér á landi það sem af er þessu ári má gera ráð fyrir að heldur horfi til betri vegar í þessum efnum og að bílafloti landsmanna, sem er með þeim elstu í löndunum sem við berum okkur alla jafna saman við, fari að endurnýjast jafnt og þétt. „Gengið hefur styrkst og nýir bílar eru í reynd bara nokkuð ódýrir hér á landi,“ bendir Benni á. „Þá er mér ljúft að benda á sérlega góð lánakjör sem við bjóðum upp á í Opel-fjármögnun. Þar bjóðum við upp á 5,95% fasta vexti á óverðtryggðu láni til fimm ára, kjör sem ég hef ekki séð annars staðar.“

Nýtt á leiðinni frá Porsche

Ekki verður hjá því komist að spyrja hvað sé títt af Porsche-vígstöðvunum, nú þegar við Benni höfum rætt Opelinn. „Þar er á leiðinni nýr Cayenne, með kraftmeiri dísilvél, og hann verður með mun ríkulegri staðalbúnaði en á sama verði. Hann lækkar nefnilega í tollflokki þar eð hann mengar minna. Meiri kraftur, minni eyðsla og minni mengun. Það er eins og Porsche geti endalaust gert betur,“ segir Benni og brosir. „Þá er líka á leiðinni plug-in útfærsla á Cayenne, eins og við höfum þegar kynnt á Panamera-bílnum. Sá bíll er gríðarlega spennandi, rýkur í hundraðið á 5,9 sekúndum og þann bíl munum við bjóða á 12,9 milljónir. Svo það er hellingur af spennandi bílum í gangi hjá okkur og okkur er í mun að leggja okkar af mörkum til að auðvelda endurnýjun bílaflotans. Hún er fyrir lifandis löngu tímabær.“ jonagnar@mbl.is

Bílar knúnir rafmagni hasla sér sífellt meiri völl á bílamarkaðnum …
Bílar knúnir rafmagni hasla sér sífellt meiri völl á bílamarkaðnum enda eldsneyti ekki gefins. Opel lætur sitt ekki eftir liggja í þeim efnum heldur býður upp á rafbílinn Opel Ampera. mbl.is/Kristinn Ingvarsson
Nýr Cayenne er væntanlegur með kraftmeiri dísilvél, og hann verður …
Nýr Cayenne er væntanlegur með kraftmeiri dísilvél, og hann verður með mun ríkulegri staðalbúnaði en á sama verði og forverinn. Meiri kraftur, minni eyðsla og minni mengun. mbl.is/afp
Benni hlakka til að kynna landsmenn fyrir lúxusbílnum Opel Insignia.
Benni hlakka til að kynna landsmenn fyrir lúxusbílnum Opel Insignia. mbl.is/Kristinn Ingvarsson
Borgarbíllinn Adam er meðal nýrra bíla frá Opel.
Borgarbíllinn Adam er meðal nýrra bíla frá Opel. mbl.is/Kristinn Ingvarsson
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur: