Notaðir bílar flytja um set

Frá nýju athafnasvæði Notaðra bíla hjá Bílabúð Benna á Vagnhöfða …
Frá nýju athafnasvæði Notaðra bíla hjá Bílabúð Benna á Vagnhöfða 27.

Notaðir bílar hjá Bílabúð Benna eru fluttir í nýtt og glæsilegt húsnæði að Vagnhöfða 27.

„Hér hefur mikið gengið á að undanförnu og við erum mjög sáttir með útkomuna,“ segir Daði Harðarson sölustjóri Notaðra bíla hjá Bílabúð Benna.

Hann bætir því við að nýja húsnæðið bjóði upp á topp aðstöðu á allan hátt og segir að viðskiptavinir fyrirtækisins eigi eftir að njóta þess.


 

mbl.is