Tvö íslensk mótorhjól í öðru sæti

Ólafur Sveinsson var að vonum ánægður með bikarinn sem hann …
Ólafur Sveinsson var að vonum ánægður með bikarinn sem hann hlaut fyrir annað sætið í flokkinum Best Old School.

Scandinavian Motorshow East 2014 var haldin í Bella Center í Kaupmannahöfn síðustu helgina í september síðastliðnum en hún er sú stærsta á Norðurlöndunum.

Þar eru ekki sýndir nýir bílar heldur sérútbúnir bílar og hjól af öllum kaliberum og sem nöfnum tjáir að nefna. Um 800 þáttakendur eru yfirleitt skráðir og alls komu um 40.000 gestir alla helgina. Bestu og athyglisverðustu hjólin og bílarnir bítast um verðlaunasæti í alls konar flokkum, frá bestu felgur undir bíl og í klikkaðasta hjólið og allt þar á milli.

Silgdi út með hjólið

Íslendingar áttu fulltrúa á sýningunni og rötuðu tveir Íslendingar á verðlaunapall umrædda helgi í Kaupmannhöfn. Ólafur Sveinsson myndlistarmaður sigldi hjóli sínu út með Eimskip, en hjól Ólafs er Honda CB750K frá 1980. „Hjólið er svokallaður Café Racer og hefur verið í smíðum og sköpun síðastliðin þrjú ár,“ segir Ólafur. „Eimskip styrkti ferðina með flutningnum út og Honda á Íslandi lagði til kassa undir hjólið. Flogið var út á miðvikudegi, hjólið sett saman aftur og því ekið á sýninguna. Gaman er að því að Íslandingar nær og fjær sýni á alþjóðlegum grundvelli og hvað þeir eru að brasa í skúrum sínum. Þessi sýning er fyrir alla aldurshópa og er geysigaman að skoða. Elstu farartækin voru frá um 1920 og þarna voru kvartmílubílar, uppgerðir gamlir bílar og mótorhjól, Hot Rod-bílar og loks mótorhjól sem eru hrein og klár listaverk.“ Hjól Ólafs lenti í öðru sæti í Best Old School-flokknum, en fyrsta sætið þar hlaut gamalt Indian frá 1939. Tveir aðrir Íslendingar áttu hjól á sýningunni en tvær íslenskar konur búsettar í Danmörku voru þarna með hjólin sín. Önnur þeirra heitir Erla Sveinbjörg Sævarsdóttir sem sýndi tvö hjól, léttbreytt Suzuki Savage og Harley Davidson Sportster 883, málað með knallrauðu glimmer-effektlakki. Erla tók líka annað sæti fyrir besta óbreytta Harley-hjólið. Fyrir þá sem hafa áhuga á að kynna sér þessa sýningu má skoða www.streetfire.dk en þar má sjá öll úrslit í öllum flokkum og einnig fyrri sýningar.

njall@mbl.is

Hjól Erlu var þetta glimmerrauða Harley hjól en hún hlaut …
Hjól Erlu var þetta glimmerrauða Harley hjól en hún hlaut einnig annað sæti í flokki óbreyttra Harley-Davidson mótorhjóla.
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur: