Bílarnir hans Bláskjás gamla

Aftur kominn á toppinn eftir mögur ár kringum 1950. Sinatra …
Aftur kominn á toppinn eftir mögur ár kringum 1950. Sinatra er hér með Ford Thunderbird árgerð 1955.

Í þennan þátt hefur margur frægur maðurinn og fyrirmennið ratað enda forvitnilegt fyrir okkur brauðstritarana að sjá hvaða bíla þeir einstaklingar kjósa sem vita ekki aura sinna tal og geta látið allt eftir sér sem hugurinn á annað borð girnist.

Oftar en ekki felur það í sér draumabíla sem flest okkar verða að láta sér nægja að dreyma um.

En hvað þá um þann einstakling sem jafnan er talinn með helstu skemmtikröftum 20. aldarinnar – ef ekki einfaldlega sá mesti – sjálfan Frank Sinatra? Í krafti vinsælda sinna og goðsagnar gat hann veitt sér flest sem honum kom í hug og bifreiðar þar með taldar. Lítum á bílana sem Röddin, öðru nafni Bláskjár gamli, enn öðru nafni Stjórnarformaðurinn, ók á meðan hann var og hét.

Amerískir öndvegisvagnar

Litlum sögum fer af því hvaða bílum Sinatra ók á fyrri hluta ferils síns, til ársins 1950, og þegar hann gekk í gegnum lægðina miklu á ferlinum á árunum '51-'53 þurfti hann sjálfsagt að fá far hjá vinum og samstarfsfólki, svo illa gaf á bátinn hjá honum. En hann reif sg upp og varð í kjölfarið vinsælli en nokkru sinni, frá og með Óskarsverðlaunum sem hann hlaut fyrir leik sinn í kvikmyndinni From Here To Eternity árið 1953, og þá var ekki að sökum að spyrja. Hann ók eintómum lúxusvögnum þaðan í frá.

Fyrst ber að nefna Ford Thunderbird-blæjubíl, árgerð 1955. Árið sem kappinn gaf út meistaraverkið In The Wee Small Hours var hann aftur kominn á toppinn og lét ekkert minna duga en svartan T-Bird enda bíllinn þá með þeim vinsælustu vestanhafs. Ljóst má vera að hann var sáttur við gripinn því árið eftir hélt hann tryggð við Ford-samsteypuna því þegar kom að því að bæta við flotann splæsti hann í Lincoln Continental Mark II, stóran og tilkomumikinn dreka.

Árið 1957 sendi Frank svo frá sér hina víðfrægu plötu Come Fly With Me og leitaði um leið á meira framandi slóðir í bílakaupum. Sá næsti sem rataði í plássgóðan bílskúrinn var Dual-Ghia, módel 1957, en þar var á ferðinni sportlegur bíll sem Chrysler framleiddi og stjörnurnar vestanhafs tóku ástfóstri við en tegundin reyndist engu að síður skammlíf. Sinatra auðnaðist þó að bæta seinna við sig eintaki af 1962 af Dual-Ghia L6.4. Í millitíðinni átti hann líka '58 módelið af Cadillac Eldorado.

Evrópskir eðalvagnar í bland

Þegar Sinatra varð fimmtugur, árið 1965, tókst hann á við miðlífskrísuna eins og hvert annað karlmenni og fékk sér sportbíl. En sjálfur Stjórnarformaðurinn gat ekki fengið sér bara hvaða bíl sem var svo hann lét George Barris sérhanna fyrir sig Ford Mustang. Bíllinn, sem kallaður var Zebra Mustang, var sérkennilegur útlits og lumaði á ýmsum nýjungum innanstokks. Þar á meðal voru glasahaldarar, sem reyndar rúmuðu heilar viskíflöskur (Sinatra var sólginn í Jack Daniel's, þó ekki þegar hann sjálfur ók) en slíkt var þá nýlunda. Einnig var í bílnum að finna lítið sjónvarp, svart/hvítt að vísu, en það þótti mikið undur á sjöunda áratugnum.

Þegar Sinatra lét svo tilleiðast að fá sér evrópskan bíl réðst hann ekki á garðinn þar sem hann var lægstur frekar en endranær. Fyrir valinu varð Lamborghini Miura, árgerð 1969, og frægt er hvað Sinatra sagði einhverju sinni um bílinn þann: „You buy a Ferrari when you want to be somebody. You buy a Lamborghini when you are somebody.“

Af öðrum evrópskum gæðingum sem Sinatra ók um sína daga má svo nefna '76 árgerð af himinbláum Rolls-Royce Silver Shadow og dökkgrænan Jaguar XJS frá árinu 1989. Þótti sá síðarnefndi sérlega fallegur enda hafði kappinn mikið dálæti á honum.

Að endingu er rétt að nefna bíl sem var sá eini sem Sinatra auglýsti um sína daga. Það var 1980 árgerðin af Chrysler Imperial, sem átti að setja ný viðmið í þægindum og munaði en þegar til kastanna kom reyndist hann bilanagjarn og erfiður viðureignar. Bíllinn kom út í ljósblárri Sinatra-útgáfu og tengingin er nóg til þess að bíllinn er eftirsóttur söfnunargripur meðal áhugamanna enn í dag.

jonagnar@mbl.is

Lincoln Continental Mark II var drossía sem átti að koma …
Lincoln Continental Mark II var drossía sem átti að koma framleiðandanum aftur á kortið meðal lúxusbíla. Frankie valdi sér alltént einn.
Þessi sérsmíðaði Mustang 1965, nefndur Zebra Mustang, var meðal Sinatra …
Þessi sérsmíðaði Mustang 1965, nefndur Zebra Mustang, var meðal Sinatra við miðlífskrísunni. Hann bauð farþegum upp á skota og sjónvarp.
Jaguar XJS sem Sinatra ók síðustu árin þótti með fallegustu …
Jaguar XJS sem Sinatra ók síðustu árin þótti með fallegustu bílunum sem stjörnurnar í Palm Springs óku á níundaáratugnum. Gullfallegur.
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur: