Þjónustudagur Chevrolet

Hin ýmsu módel Chevroletbíla.
Hin ýmsu módel Chevroletbíla.

Á morgun, laugardaginn  25. október, fer fram árlegur þjónustudagur Chevrolet hjá Bílabúð Benna.

Í tilkynningu hvetur búðin eigendur Chevrolet til að koma með bílana sína til fyrirtækisins við Tangarhöfða 8 eða á Njarðarbraut 9 í Reykjanesbæ.

Fram kemur í tilkynningu frá Bílabúð Benna að starfsmenn fyrirtækisins muni standa vaktina á laugardaginn, milli klukkan 11 og 16, og bjóða ókeypis vetrarskoðun, auk þess sem sértilboð verða í gangi og glaðningur fyrir alla fjölskylduna.

mbl.is