BL frumsýnir BMW Active Tourer

BMW 218d Active Tourer er framhjóladrifinn fjölnotabíll og sá fyrsti …
BMW 218d Active Tourer er framhjóladrifinn fjölnotabíll og sá fyrsti sinnar tegundar frá hinum þýska framleiðanda. Í þessum lipra bíl er að finna fínasta BMW.

Bifreiðaumboðið BL frumsýnir í dag, laugardag,  hinn nýja BMW Active Tourer úr 2-seríu BMW.

Sýningin fer fram í húsakynnum BL að Sævarhöfða 12 og stendur frá klukkan 12 til 16. 

BMW 218d Acti­ve Tourer er fram­hjóla­drif­inn fjöl­nota­bíll og sá fyrsti sinn­ar teg­und­ar frá hinum þýska fram­leiðanda, að því er fram kom í dómi blaðamanns Morgunblaðsins um bílinn.

mbl.is