423.000 Lexus-bílar innkallaðir

Lexus GS.
Lexus GS. Morgunblaðið/Kristinn

Lexus, lúxusbílafyrirtæki Toyota, innkallaði fyrir helgi 423.000 bíla í Bandaríkjunum vegna galla.

Að sögn AP-fréttastofunnar eru bílarnir kallaðir inn til að lagfæra galla sem felst í því að hætta á ryðmyndun og tæringu sem valdið getur leka í eldsneytiskerfi.

Um er að ræða bíla af Lexus GS af árgerðunum 2006-2011, Lexus LS af árgerðunum 2007-2010 og Lexus IS af árgerðunum 2006-2011.

mbl.is