Silfurgljáandi eðalvagnar í Los Angeles

Það var mikið um dýrðir og nóg af glæsivögnum þegar bílablaðamenn fengu að skoða bílana sem skipa sýningarkost Alþjóðlegu bílasýningarinnar í Los Angeles 2014.

Hver öndvegisbíllinn rak þar annan og nóg af bifreiðum með álitlegan hámarkshraða og eftir því myndarlegan verðmiða.

Nánar verður fjallað um bílasýninguna í L.A. í næsta tölublaði bílablaðsins en hér er svolítill forsmekkur. Um leið má benda á frétt um endurkomu lúxusbílsins Maybach sem sagt er frá annars staðar í Bílablaðinu í dag.

jonagnar@mbl.is

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur: