Skoda hefur birt myndir af hugmyndabílnum Fabia R5, en þar er um að ræða rallbíl framtíðarinnar af hálfu tékkneska bílsmiðsins.
Hugmyndabíll þessi verður frumsýndur á bílasýningu sem hefst í Essen í Þýskalandi komandi helgi. Hann er byggður að hluta til á þriðju kynslóð Fabiabílsins en verður búinn dæmigerðum uppfærslum í keppnisbíl, meðal annars til að bæta loftflæði um hann en því hlutverki gegna til dæmis afturvængur og loftinntak á þaki.
Þá er fjöðrunin sett upp öllu stífar, bremsur eru stærri en í venjulegum Fabia, hliðarspeglar minni til að draga úr loftmótstöðu og pústkerfið kemur út undir bílnum miðjum sem verður og búinn Michelindekkjum.
Afl sitt fær Skoda Fabia R5 frá fjögura strokka 1,6 lítra bensínvél með forþjöppu. Áföst henni verður fimm hraða hálfsjálfvirk raðskipting. Þessum splunkunýja sportbíl er ætlað að leysa af hólmi S2000-bílinn til keppni í ralli.