Stungið í samband í stærstu innstungu landsins

Kia Soul EV tengdur við innstunguna stóru.
Kia Soul EV tengdur við innstunguna stóru.

Vegfarendur hafa eflaust velt vöngum yfir risastórri rafmagnskló sem stungið hefur verið í innstungu af sömu stærð á vegg líkamsræktarstöðvarinnar World Class í Laugum.

Innstungan er sú stærsta á landinu, 180 x 180 sm, en það voru starfsmenn Bílaumboðsins Öskju sem komu henni fyrir í tilefni þess að á morgun, laugardag, verður glænýr rafmagnsbíll af gerðinni Kia Soul EV frumsýndur hér á landi.

Klóin og innstungan voru hönnuð af auglýsingasofunni Brandenburg í samstarfi við leikmyndagerðina Irma Studio. Tók það tvo listamenn fimm daga að fullklára verkið, en það er unnið úr frauðplasti og vegur um 80 kg.

mbl.is