Séu menn á höttunum eftir bíl með besta verðgildinu þá gæti verið ráð að skoða kaup á Toyotabíl. Það má ráða af nýrri samantekt bandaríska neytendablaðsins Consumer Reports.
Þannig komast þrír Toyotabílar á lista tímaritins yfir bestu verðgildisbílana sem er meira en nokkur annar bílsmiður getur státað af.
Besta útkomu fékk Toyota Camry tvinnbíllinn sem blaðið segir bestan allra bíla að verðgildi. Fyrir eigendur hans er verðgildið tvöfalt meira en meðaltalsbílsins.
„Camry Hybrid er eigulegur fyrir tilkomumikla sparneytni, mikið pláss, þægindi og víðtæka gagnsemi,“ segir Consumer Reports.
Aðrir Toyotabílar sem urðu hlutskarpastir í sínum flokki voru Prius Four í flokki minni bíla og Highlander XLE í flokki meðalstórra jeppa. Í neðstu sætum voru Jeep og Mercedes.
Hér eru bestu og verstu bílarnir í hverjum flokki í ár, samkvæmt niðurstöðum Consumer Reports:
Örbílar:
Bestur: Hyundai Accent Sport
Sístur: Fiat 500C Pop
Minni bílar:
Bestur: Toyota Prius Four
Sístur: Fiat 500L Easy
Minni lúxusubílar:
Bestur: Buick Regal Premium I
Sístur: Mercedes-Benz CLA250
Meðalstórir/stórir lúxusbílar:
Bestur: Lexus ES 300h
Sístur: Mercedes-Benz S550
Stórir bílar:
Bestur: Chevrolet Impala 2LTZ
Sístur: Ford Taurus Limited
Sportbílar/blæjubílar:
Bestur: Mazda MX-5 Miata Grand Touring
Sístur: Infiniti Q60 convertible
Midsized Cars:
Bestur: Toyota Camry Hybrid XLE
Sístur: Nissan Altima 3.5 SL
Stórir fólksbílar:
Bestur: Subaru Outback 2.5i Premium
Sístur: Honda Crosstour EX-L (V6)
Borgarjeppar:
Bestur: Subaru Forester 2.5i Premium
Sístur: Jeep Cherokee Latitude
Meðalstórir jeppar:
Bestur: Toyota Highlander XLE
Sístur: Jeep Wrangler Unlimited Sahara
Stórir jeppar:
Bestur: Chevrolet Traverse LT
Sístur: GMC Yukon SLT
Lúxusjepplingar:
Bestur: BMW X3 xDrive28i (2.0T)
Sístur: Cadillac SRX Luxury
Lúxusjeppar meðalstórir/stórir
Bestur: Lexus RX 450h
Sístur: Mercedes-Benz GL350 BlueTec
Pallbílar:
Bestur: Nissan Frontier SV
Sístur: Toyota Tacoma
Minikálfar:
Bestur: Mazda5 Grand Touring
Sístur: Chrysler Town & Country Touring-L