Bílabúð Benna lækkar bílverð

Meðal vinsælustu bíla hjá Bílabúð Benna er Chevrolet Spark.
Meðal vinsælustu bíla hjá Bílabúð Benna er Chevrolet Spark.

Bílabúð Benna hefur brugðist við lækkun á efra þrepi virðisaukaskatts með því að lækka útsöluverð á bílum sínum.

Söluskattsbreytingin tekur gildi á fyrsta degi nýs árs, en Bílabúð Benna er ekkert að bíða eftir því, heldur býður þeim sem ganga frá pöntunum á nýjum bíl fram að áramótum fái bílana á lægra verðinu komi hann til afhendingar á nýju ári.

Heildarlækkun bílverðs hjá Benna vegna söluskattsbreytingarinnar getur numið allt að 200.000 krónum.

mbl.is