Kia Picanto sýning í Öskju

Kia Picanto.
Kia Picanto.

Bílaumboðið Askja heldur sérstaka Kia Picanto sýningu á morgun, laugardaginn 31. janúar. Sýningin er liður í 10 ára afmæli Öskju en fyrirtækið mun fagna þessum tímamótum með fjölda viðburða á árinu.

Kynnt verður afmælisútgáfa af hinum vinsæla Picanto en um er að ræða beinskipta EX útfærslu sem hefur hingað til einungis verið í boði sjálfskiptur.

Í tilkynningu frá Öskju segir, að Picanto EX komi með ýmsum búnaði sem sé meiri en gengur og gerist í þessum stærðarflokki, m.a. með álfelgum, hita í stýri, handfrjálsum búnaði (Bluetooth), USB/AUX tengi, skyggðum rúðum, rafmagni í rúðum aftur í og fram í, ESP stöðugleikastýringu o.fl. Verð bílsins er  2.090.777 kr.

Picanto er einn sparneytnasti og umhverfismildasti bíllinn í sínum stærðarflokki. Hann er með 7 ára ábyrgð eins og allir nýir Kia bílar en þetta er lengsta verksmiðjuábyrgð sem bílaframleiðandi býður upp á í heiminum í dag. Opið verður í Öskju frá kl. 12-16 á laugardag og boðið verður upp á léttar veitingar.

mbl.is