Í París stendur nú yfir sýning á bifreiðahönnun og hugmyndabílum sem hófst í fyrradag.
Sýningin stendur yfir fram á sunnudagkvöld. Kennir þar að sjálfsögðu margra grasa og margar bifreiðarnar sem þar gefur að líta með ólíkindum framúrstefnulegar.
Meðfylgjandi myndasyrpa gefur sýnishorn af því sem fyrir augu ber á sýningunni.