Nissan Leaf besti smábíllinn

Nissan Leaf er víða mest seldi rafbíllinn.
Nissan Leaf er víða mest seldi rafbíllinn. Wieck

Alþjóðlega greiningarfyrirtækið IHS í Bandaríkjunum útnefndi Nissan Leaf besta smábílinn 2014 í árlegri skýrslu um tryggð bíleigenda við framleiðendur og bílgerðir.

Skýrslan nefnist „Polk Automotive Loyalty Awards“ er sú eina sinnar tegundar í boði fyrir alþjóðlegan bílaiðnað, að því er fram kemur í tilkynningu.

Greint var frá niðurstöðum útnefninga IHS í fjölmörgum flokkum á alþjóðlegu bílasýningunni í Detroit. Nissan Leaf var jafnframt eini rafbíllinn sem tilnefndur var af hálfu IHS.

Nissan Leaf hefur átt mikilli velgengni að fagna á öllum helstu mörkuðum heims síðan hann fór í fjöldaframleiðslu og sölu um allan heim árið 2010. Í Bandaríkjunum seldust á síðasta ári 30.200 bílar og er Nissan Leaf fyrsti rafmagnsbíllinn á Bandaríkjamarkaði sem selst hefur í meira en 30 þúsundum eintaka á einu ári.

Skýrsla IHS, The Polk Automotive Loyalty Awards, er gefin út árlega. Hún sýnir yfirlit yfir bílaframleiðendur og einstakar bílgerðir og árangur framleiðenda í því að viðhalda trúnaði bíleigenda við framleiðandann eða einstakar bílgerðir þegar kemur að bílakaupum.

Innviðir í Nissan Leaf.
Innviðir í Nissan Leaf.
Nissan Leaf er víða mest seldi rafbíllinn.
Nissan Leaf er víða mest seldi rafbíllinn.
mbl.is