Lögreglan í Sun City í Arizonaríki í Bandaríkjunum fékk heldur óvenjulegt viðfangsefni í gær.
Lamadýr höfðu sloppið út úr heimkynnum sínum í garði nokkrum í borginni og hófu nokkuð hættulegt ferðalag eftir götum borgarinnar.
Eltust bílar lögreglunnar við dýrin lengi vel og minntu um fátt á gamla kúreka sem snarað hefðu dýrin tvö til hlýðni. Á endanum hafði lögreglan þó erindi sem erfiði en hjálagt myndskeið gefur góða sýn af eltingaleiknum.