26,5% aukning í nýskráningum fólksbíla í febrúar

Hlutfall bílaleigubíla hefur minkað í heildarskráningum.
Hlutfall bílaleigubíla hefur minkað í heildarskráningum. mbl.is/Golli

Sala á nýjum fólksbílum frá 1–28 febrúar sl. jókst um 26,5% en nýskráðir  fólksbílar á þessu tímabili voru 632 stk. á móti 495 í sama mánuði 2014 eða aukning um 137 bíla.

Þar af voru 202 bílaleigubílar eða 32% af heildarnýskráningum fólksbíla í mánuðinum, samkvæmt upplýsingum frá Bílgreinasambandinu (BGS).

Hlutfall bílaleigubíla hefur minkað í heildarskráningum þó enn séu þeir stór hluti af nýskráningum. Eftirspurn eftir bílaleigubílum eykst að sama skapi og fjöldi  ferðamanna eykst sem og tímabilið er ekki lengur aðeins bundið við sumarmánuðina þó svo eftirspurnin sé mest á þeim tíma. 

Hins vegar hefur sala til einstaklinga og fyrirtækja verið að aukast bæði á síðasta ári sem og það sem af er þessu ári. 

„Við reiknum með því að hlutur einstaklinga í heildarsölu eigi eftir að aukast töluvert á þessu ári,“ segir  Özur Lárusson framkvæmdastjóri Bílgreinasambandsins.

mbl.is