Malín Brand nýr formaður

Malín Brand með syni sínum.
Malín Brand með syni sínum. mbl.is/Rósa Braga

Í síðustu viku var nýr formaður kjörinn hjá Bandalagi íslenskra bílablaðamanna, BÍBB eins og það er skammstafað. Lét Guðjón Guðmundsson af formennsku eftir tíu ára setu og voru honum þökkuð prýðisgóð störf.

Malín Brand, bílablaðamaður á Morgunblaðinu, tók við formennsku og er hún fyrsta konan sem gegnir því embætti í sögu bandalagsins. Bandalag íslenskra bílablaðamanna er samtök blaðamanna sem hafa haft umfjöllun um bíla með höndum í íslenskum fjölmiðlum og kemur það að vali á bíl ársins hér á landi á ári hverju. Í BÍBB eru blaðamenn frá Fréttablaðinu, FÍB-blaðinu, Morgunblaðinu, Viðskiptablaðinu auk sjálfstætt starfandi bílablaðamanna.

Bílablað Morgunblaðsins óskar Malín hjartanlega til hamingju með kjörið og óskar henni allra heilla við formennskuna hjá BÍBB meðfram áframhaldandi störfum sínum fyrir bílablaðið.

jonagnar@mbl.is

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur: