Fyrstu tveir dagar bílasýningarinnar í Genf voru fráteknir fyrir blaðamenn.
Þar stillti Volkswagen fram sínum fínustu bílum og brúkaði sýningarstúlkur til að draga athyglina enn frekar að ægifögrum bílunum.
Bílasýningin í Genf opnaði fyrir almenning í dag og er opin frá 5. til 15. mars. Svo sem við er að búast kennir þar mjög margra grasa.