Ný Corsa frumsýnd á laugardag

Opel Corsa verður frumsýndur um komandi helgi.
Opel Corsa verður frumsýndur um komandi helgi.

Bílabúð Benna frumsýnir nýjan Opel Corsa næstkomandi laugardag, 7. mars, í Reykjavík og í Reykjanesbæ. 

„Nýja Corsan frá Opel er afar sportlegur fimm manna bíll sem kemur virkilega á óvart fyrir óvenju fullkominn tækni- og öryggisbúnað, ferska hönnun, sprækar vélar, sparneytni og frábært verð,“ segir í tilkynningu frá Bílabúð Benna um frumsýninguna.

Opel merkið hefur verið á mikilli uppleið í Evrópu og hlotið fjölda hönnunar- og gæðaverðlaun að undanförnu. „Metnaður Opel er gríðarlegur og er 4 milljarða evra fjárfesting fyrirtækisins í þróun á nýjum bílgerðum til marks um það. Það þýðir að fram til ársins 2018 gerir fyrirtækið ráð fyrir að kynna eina 27 nýja bíla og 17 nýjar bílvélar. Afraksturinn er að skila sér, jafnt og þétt, og nú er komið að fimmtu kynslóðinni af Corsa. Mikil eftirvænting hefur ríkt fyrir komu hans, enda ein mest selda einstaka bílgerðin sem framleidd hefur verið í Evrópu, með 12,3 milljón eintök seld frá markaðssetningu hans árið 1982,“ segir ennfremur í tilkynningunni.

Nýr Corsa hefur staðið undir væntingum jafnt gagnrýnenda sem neytenda, en nú í nýliðnum desember, aðeins þremur mánuðum eftir frumsýningu hans í Frankfurt, höfðu borist yfir 55 þúsund pantanir.

Samkvæmt upplýsingum Björns Ragnarssonar, framkvæmdastjóra Bílasviðs hjá Bílabúð Benna, fer Corsa frumsýningin fram í Reykjavík bæði laugardag og sunnudag, en í Reykjanesbæ á laugardeginum.

mbl.is