Mercedes-Benz GLE 17% sparneytnari

Jeppinn heitir Mercedes-Benz GLE í stað ML áður.
Jeppinn heitir Mercedes-Benz GLE í stað ML áður.

Mercedes-Benz hefur gert gagngerar breytingar á GLE-jeppanum. ML var söluhæsti jeppi bílsmiðsins en nú heitir hann GLE í samræmi við nýtt nafnakerfi Mercedes.

„Meðal þess sem blasir við er enn laglegri fram- og aftursvipur en það sem síður er sýnilegt er önnur nálgun hvað varðar útblástur og aflrásir sem setur ný viðmið í þessum flokki bíla. Yfir alla vélarlínuna fer eyðslan og CO2 losun niður um 17% að meðaltali í samanburði við fyrri gerð,“ segir í tilkynningu um tilkomu GLE-jeppans.

GLE er nú í fyrsta sinn boðinn sem tengiltvinnbíll. Til viðbótar við sparneytnu og aflmiklu, fjögurra strokka, 204 hestafla dísilvélina  í GLE 250 d og GLE 250 d 4MATIC, er í boði 258 hestafla, V6 dísilvél í GLE 350 d 4MATIC með snúningsvægi upp á 620 Newton metra.

Margvíslegum aðgerðum er beitt til þess að ná eldsneytisnotkuninni niður. Árangurinn er 6,4 lítrar á hundraðið sem er 9% minni eldsneytisnotkun en í fyrri gerð.

Strax frá markaðssetningu nýrrar GLE kynslóðar verður staðalbúnaður í öllum dísilgerðum níu þrepa 9G-TRONIC sjálfskipting. Þær verða einnig í fyrsta sinn fáanlegar með niðurfærslugír og mismunadrifslæsingu.

Mercedes-Benz GLE
Mercedes-Benz GLE
mbl.is