Viljum launa áskrifendum tryggðina

„Málið snýst um það að við viljum verðlauna áskrifendur Morgunblaðsins,“ …
„Málið snýst um það að við viljum verðlauna áskrifendur Morgunblaðsins,“ segir Erling Adolf Ágústsson hjá sölu- og markaðssviði Árvakurs.

Í annað skiptið á þessu ári efnir Morgunblaðið nú til happdrættis þar sem vinningurinn er glæný bifreið, hvorki meira né minna. Það eina sem þarf til að vera með í pottinum er að vera áskrifandi að Morgunblaðinu.

„Málið snýst um það að við viljum verðlauna áskrifendur Morgunblaðsins,“ segir Erling Adolf Ágústsson hjá sölu- og markaðssviði Árvakurs, útgáfufyrirtæki Morgunblaðsins. „Í þeim tilgangi gefum við Toyota Corolla, vel búinn bíl, hlaðinn aukahlutum. Þú færð bara ekki flottari Corollu,“ bætir Erling við. Til útskýringar nefnir Erling að bíllinn sé að verðmæti 4.899.000 krónur en til samanburðar megi benda á að Toyota Corolla sé fáanleg niður í um þrjár og hálfa milljón. „Það er því töluvert vel í lagt.“

Tveir góðkunningjar þjóðarinnar

Sem framar greinir er þátttaka í happdrættinu hið einfaldasta mál, eins og Erling bendir á. „Allir greiðandi áskrifendur Morgunblaðsins eru með í pottinum og þurfa þess utan ekki að gera nokkurn skapaðan hlut. Við erum einfaldlega að verðlauna áskrifendur okkar fyrir tryggðina í gegnum árin.“

Aðspurður um valið á bíl til að verðlauna áskrifendur með í þessu happdrætti segir Erling þar eitt og annað koma til. „Toyota hefur löngum verið vinsælasti bíll landsins og Corollan hefur verið með söluhæstu bíltegundum um áratugaskeið. Nýi bíllinn er ellefta kynslóð Toyota Corolla – geri aðrir betur – sem gefur bæði til kynna gæði bílsins og vinsældir hans gegnum kynslóðirnar. Þá er gaman að minna á að Toyota er fimmtíu ára á Íslandi í ár, Morgunblaðið er nýlega orðið hundrað ára. Það má segja að fyrirtækin eigi það sammerkt að hafa fylgt Íslendingum um langt skeið og átt farsæla samleið með fólkinu í landinu. Þar fyrir utan er þessi Toyota Corolla alveg einstaklega fallegur,“ bætir Erling við.

Áskrifendur ættu því að fylgjast vel með næstu vikurnar því miðvikudaginn 22. apríl verður kunngert hvaða áskrifandi hefur dottið svo rækilega í lukkupottinn að hreppa þennan gullfallega bíl af nýjustu gerð Toyota Corolla.

jonagnar@mbl.is

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur: