Ánægja með rafbílinn

Búi Ármannsson hjá Promens tók á móti Kia Soul EV …
Búi Ármannsson hjá Promens tók á móti Kia Soul EV rafbílnum sem þeir Eyjólfur og Heimir frá Bílaleigunni Höld afhentu.

Promens á Dalvík fékk á dögunum afhentan nýjan Kia Soul EV rafbíl frá Bílaumboðinu Öskju. Bílaleigan Höldur á Akureyri afhenti forsvarsmönnum Promens bílinn og er mikil ánægja með hann norðan heiða.

„Við erum mjög ánægðir með rafbílinn. Við erum að aka bílnum á milli Dalvíkur og Akureyrar með fjóra farþega og 120 km hleðslan dugar léttilega í það verkefni. Það er mikil ánægja með hann hér. Við leggjum áherslu á að lágmarka umhverfisáhrif fyrirtækisins og höfum á undanförnum árum tekið mikilvæg skref í þá átt að draga úr notkun kolefnisorkugjafa en auka vægi innlendrar grænnrar orku við framleiðslu á afurðum okkar. Það var því ánægjulegt að geta tekið eitt skref í viðbót og skipt díselknúnum bíl út fyrir Kia Soul rafbíl. Það sparar bæði eldsneyti, mengunin er enginn og svo er bíllinn bara mjög skemmtilegur í akstri að ógleymdri sjö ára ábyrgðinni sem hafði mikla þýðingu fyrir okkur þegar við tókum ákvörðun um það hvaða rafbíl skildi kaupa“.

Þetta segir Daði Valdimarsson, framkvæmdarstjóri hjá Promens Dalvík en fyrirtækið er leiðandi í hönnun og framleiðslu á hverfisteyptum einangruðum kerum sem nota má undir allar tegundir matvæla sem framleiddar eru í veröldinni.

Kia Soul EV, hefur 145 km hámarkshraða og uppgefið hámarksdrægi við bestu aðstæður er um 212 km.

mbl.is