Bíll ársins 2015 í flokki notaðra bíla er Mercedes C-Class af árgerðunum 2007-11, en hann þykir áreiðanlegur og peninganna virði.
Að baki valinu er dómnefnd sem skipuð var bílablaðamönnum og atvinnulífinu. Mat hún bílana meðal annars út frá notagildi, viðhaldskostnaði, endingartrausti og hagkvæmni.
Mercedes-Benz C-Class fékk 180 stig en í öðru sæti varð Nissan Qashqai af árgerðunum 2010-14 og í þriðja sæti Opel Insignia af árgerðunum 2008-13. Munaði 45 stigum á einkunn Qashqai og C-Class og Insignia fékk alls 80 stig.
Áður fyrr var C-Class fyrst og fremst algengur leigubíll í Danmörku. Á því hefur orðið breyting og talsvert verið um það í seinni tíð, að einstaklingar og fyrirtæki hafi keypt þennan bíl.
agas@mbl.is
Ágúst Ásgeirsson