Rafbíll í fyrsta sinn söluhæsta einstaka gerðin hjá BL

Rafmagnsbíllinn Nissan Leaf
Rafmagnsbíllinn Nissan Leaf Ljósmynd/BL

Sala bifreiða hjá BL ehf. gekk vel í nýliðnum marsmánuði og er hlutdeild fyrirtækisins á einstaklings- og fyrirtækjamarkaði, án bílaleiga, 25,1%. Alls voru afhentir 217 bílar í mars, 34 bílum fleiri en í febrúar.

Söluhæsta einstaka merkið var Nissan, með alls 67 bíla, þar af 25 Nissan Leaf, og var þetta í fyrsta sinn sem rafbíll var mest selda einstaka bílgerðin hjá BL, að því er fram kemur í fréttatilkynningu.

Skúli K. Skúlason, framkvæmdastjóri sölusviðs BL, segir bílasöluna aukast samfara hækkandi sól og það eigi einnig við um áhuga á rafbílnum Leaf frá Nissan.

„Við sjáum nokkuð skemmtilega dreifingu á Leaf því hún fer vaxandi í öllum markhópum. Við sjáum að fjölskyldufólk horfir í sífellt auknum mæli til Leaf sem fjölskyldubíls, fleiri og fleiri fyrirtæki á höfuðborgarsvæðinu eru að taka hann í sína þjónustu og bílaleigurnar eru einnig farnar að bjóða Leaf á leigu. Bara í marsmánuði fóru sex Leaf til bílaleiga og því markaði síðasti mánuður einnig tímamót á bílaleigumarkaði hvað Leaf varðar,“ segir Skúli.

Fram kemur í tilkynningunni að flest bílaumboð landsins séu nú byrjuð að afhenda bíla í stórum stíl til bílaleiganna og nam sá hluti um 40% af heildarsölu marsmánaðar þegar leigurnar fengu afhenta 432 bíla.

mbl.is

Bloggað um fréttina