BMW tekur forskot á sumarið

Flaggskipið í flotanum; BMW 730d.
Flaggskipið í flotanum; BMW 730d.

BMW tekur forskot á sumarið á morgun, laugardaginn 18. apríl, með sýningu á nýjum fólksbílum í sportlegum og sumarlegum útgáfum.

„Á sýningunni verður m.a. til sýnis hið glæsilega flaggskip í flotanum; BMW 730d sem kynntur verður í fjórhjóladrifinni xDrive útgáfu.

Auk þess verða aðrir bílar frá BMW til sýnir með og án fjórhjóladrifs. Meðal þeirra verður t.d. BMW 320d í  Gran Turismo útgáfu og framhjóladrifni fjölnotabíllinn BMW 2 Active Tourer sem hlotið hefur mikið lof frá bílablaðamönnum fyrir fjölhæfni og nýstárlega framsetningu.

Sýningin verður haldin í sýningarsal BL við Sævarhöfða í Reykjavík mill klukkan 12 og 16 á morgun, laugardag.

mbl.is