Toyota og Lexus eru í sinni árlegu heimsókn til Vestmannaeyja og verða með bíla til sýnis og reynsluaksturs í dag og á morgun.
Sýninginn verður í dag, miðvikudag, 22. apríl frá Kl. 16:00 – 18:30 og á morgun, fimmtudag, 23. apríl Kl. 11:00 – 17:00 við Bíla- og vélaverkstæðið Nethamar, Garðavegi 15.
Boðið verður upp á reynsluakstur á nýjum bílum auk þess sem söluráðgjafar Toyota og Lexus veita upplýsingar um bílana.
Bílarnir sem verða á staðnum eru Land Cruiser 200 VX, Land Cruiser 150 VX, Rav4 GX Plus, Hilux, Corolla, Auris Hybrid Yaris og Aygo X Play. Lexus verður með RX450H og NX300h.